12. ágúst 2010
Á norrænu lýsingarráðstefnunni NordLED 2010 í Kaupmannahöfn 11.-12. nóvember nk. verður áhersla m.a. lögð á innleiðingu ljóstvista í lýsingarhönnun. Þar munu framsýnir lýsingarhönnuðir segja frá reynslu sinni af ljóstvistum. Meðal fyrirlesara eru:
- Rogier van der Heide, lýsingarhönnuður frá Philips Lighting sem segir frá lýsingarhönnun með ljóstvistum
- Guðjón L. Sigurðsson, lýsingarhönnuður frá Verkís sem fjallar um hvernig ljóstvistar hafa áhrif á vinnuaðferðir lýsingarhönnuða
- Christian Klinge frá ÅF-Hansen & Henneberg sem segir frá innleiðingu ljóstvista á hafnarsvæðinu í Árósum.
Að auki verður í boði málþing "pecha kucha" fyrirlestrar, rútuferðir til staða með lýsingu með ljóstvistum, afhending Norrænu lýsingarverðlaunanna 2010 og sýingu á ljóstvistum og lömpum fyrir ljóstvista.
nordled2010_program.pdf
Fyrstu 90 sem skrá sig á NordLED á heimasíðu Nordled fá gefins Master LEDbulb GLOW A60 8W frá Philips, þegar þeir koma á ráðstefnuna.
Gjald fyrir félaga LFÍ er 300 Euro + 25% VAT
Frá 1. október hækkar gjaldið í 3.495 DKK (480 Euro) + 25% VAT
Nemendur greiða 1.500 DKK
Nemendur skrái sig með að senda póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
með nafni, heimili, landi, símanúmeri, netfangi, námi og skóli. Afrit af gildu skólaskírteini þarf að fylgja.
Afskráning:
Berist afskráning fyrir 1. október endurgreiðist 90% af þátttökugjaldi. Við síðari afskráningar fæst ekki endurgreiðsla.
Greiðsla:
Reikningur verður sendur til viðkomandi.
SKRÁNING
Hótel:
Gisting er ekki innifalin í verði. Þátttakendur gefst kostur á að upplifa "LED hótel Kaupmannahafnar - Scandic Palace Hotel á Ráðhústorginu á sérverði. Sjá sérverð hér.
Viljir þú gista alveg við Tivoli Congress Center skráðu þig þá á Tivoli Hotel eða Wake up Copenhagen
Nánari upplýsingar fást á www.nordled.dk