led_for_vef
vinnu_for_vef
ljosogrymi_for_vef
gotuogvega_for_vef
neydar_for_vef
skolalysing_for_vef
glh-fors150
ljos0801_for_vef

Tilnefningar til Nordisk Lyspris 2010

Ljóstæknifélag Íslands hefur tilnefnt tvö verk til Norrænu lýsingarverðlaunanna.

Annað er Vatnasafn í Stykkishólmi sem listamaðurinn Roni Horn vann fyrir Stykkishólsmbæ en arkitektastofan Gláma - Kím vann. Lýsingarhönnuður var Helgi Kr. Eiríksson / Lúmex. Sjá nánar um verkið  hér .
thumb_nl10_is_vatna1

Hitt verkið er starfsmannahúss Gufunesskirkjugarðs. Arkitekt er Arkibúllan en lýsingarhönnuður er Ingi Már Helgason / Lúmex. Sjá nánar um verkið  hér .
thumb_nl10_is_kirkjug

Myndir

Málstofa í hátíðarsal Tækniskólans v/Háteigsveg

laugardaginn 27. bebrúar kl. 13-14.30

Ljósadagurinn 2010 verður haldinn í tengslum við aðalfund LFÍ 24. mars 2010.

Setning Ljósadags verður kl. 15.45 í Háskólanum í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að Ljósadeginum verið slitið í framhaldi af Guerrilla ligthing um kl. 20.

Nánar...

Daði Ágústsson formaður Ljóstæknifélags Íslands hefur tilkynnt kjörnefnd að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður félagsins. Í bréfi til kjörnefndar segir hann m.a.:

lfi_adalfundur_2008_gg_02„Nú þegar maður skoðar liðna tíð og horfir til framtíðar þá sé ég að ég hef verið formaður LFÍ í 8 ár. Þessi ár hafa verið afskaplega gjöful og ánægjuleg. Nú finnst mér tími til kominn að annar formaður taki við. Ég hef víða komið við í félagsmálum og er þeirrar skoðunar að of löng seta í formannsstól er ekki til góðs. Með nýjum formanni koma alltaf nýjar hugmyndir og aukinn kraftur. Ég gef því ekki kost á mér til formanns á næsta aðalfundi. Þakka ég mjög ánægjuleg og gefandi samskipti.“

Daði hefur verið drífandi og farsæll formaður og hefur félagið eflst í formennskutíð hans og því verður að sjálfsögðu eftirsjá í honum.

lfi_husnaedi-6

Á stjórnarfundi í húsnæði félagsins í Hafnarfirði. - ljósm. GG