led_for_vef
vinnu_for_vef
ljosogrymi_for_vef
gotuogvega_for_vef
neydar_for_vef
skolalysing_for_vef
glh-fors150
ljos0801_for_vef

Tilnefningar til Nordisk Lyspris 2010

Ljóstæknifélag Íslands hefur tilnefnt tvö verk til Norrænu lýsingarverðlaunanna.

Annað er Vatnasafn í Stykkishólmi sem listamaðurinn Roni Horn vann fyrir Stykkishólsmbæ en arkitektastofan Gláma - Kím vann. Lýsingarhönnuður var Helgi Kr. Eiríksson / Lúmex. Sjá nánar um verkið  hér .
thumb_nl10_is_vatna1

Hitt verkið er starfsmannahúss Gufunesskirkjugarðs. Arkitekt er Arkibúllan en lýsingarhönnuður er Ingi Már Helgason / Lúmex. Sjá nánar um verkið  hér .
thumb_nl10_is_kirkjug

Myndir

gudjon_l_sigurdssonÁ aðalfundi Ljóstæknifélags Íslands var Guðjón L. Sigurðsson, lýsingarhönnuður PLDA kjörinn formaður félagsins en Daði Ágústsson gaf ekki kost á sér eftir 8 ára formannstíð.

Daði var síðan kjörinn kjörnefndarmaður til 3ja ára og Þorvaldur Finnbogason var kjörinn varaendurskoðandi í stað Guðjóns L. Sigurðssonar til 2ja ára sem eftir eru af kjörtímabilinu.


Nánar...

ljostvistar2010_nr1Kristján Sigurðsson hlaut fyrstu verðlaun í vöruþróunarverkefni þar sem notaðir eru ljóstvistar.

Í umsögn dómnefndar segir: „Þessi lampi hefur allt til að bera sem prýða skal vinningslampa. Hann er ætlaður almenningi, er frumlegur og fallega hannaður. Hann tekur sérstakt tillit til ljósgjafa og nýtir eiginleika ljóstvista í hönnun sinni. Lampinn gefur möguleika á fjölbreytni í stærð og lögun og á þannig viss samskipti við eiganda. Mjög góðar líkur eru á að markaður finnist fyrir þennan lampa. Tillagan er framsett á skýran og faglegan hátt.“

 

Nánar...

Verðlaunaafhending og sýning
Staður: Húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1
Hvenær: Föstudaginn 26. febrúar kl. 20 (Dagskráin hefst kl. 20.15)

Nánar...