31. maí 2010
Norrænu ljóstæknifélögin vinna nú að undirbúningi á vandaðri bók um lýsingarhönnun á Norðurlöndunum. Í bókinni verða sagt frá og sýndar myndir af 25 af bestu verkefnunum í hverju landi, verkefnum sem sýna notkun hönnuðanna og túlkun á norrænu ljósi.
Hvernig verkefni er hægt að tilnefna?
Í bókinni verða verkefni frá tímabilinu 2000-2010. Leitað er eftir verkefnum sem nýta dagsljós, innanhússlýsingu eða utanhússlýsingu. Stærð verkefnis skiptir ekki máli en mikilvægt er að hönnuðurinn sé fæddur í eða búsettur í einu af Norðurlöndunum og verkefnið sé í norrænu landi.
Skil á tilnefningum:
Í tilefningu skal eftirfarandi koma fram: Heiti verkefnis, dags. þegar verkið var tekið í notkun, arkitekt, lýsingarhönnuður, eigandi/verktaki, staðsetning, lýsing á verkefni, stutt max. 200 stafir og lengri lýsing max 5000 stafir (lýsing á hönnunarlausn og tæknilegt yfirlit). Aðrar upplýsingar sem geta komið að gagni auk 2-3 mynda af verkefninu sem sendast með á jpg sniði. Að lokum þurfa að koma fram samskiptaupplýsingar um hönnuðu og arkitekt.
Mikilvægt er að senda inn tillögur að verkum í bókina í síðasta lagi 15. júní 2010.
Þær má senda til Guðjóns L. Sigurðssonar á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og á Daða Ágústsson á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Nánar...