led_for_vef
vinnu_for_vef
ljosogrymi_for_vef
gotuogvega_for_vef
neydar_for_vef
skolalysing_for_vef
glh-fors150
ljos0801_for_vef

Tilnefningar til Nordisk Lyspris 2010

Ljóstæknifélag Íslands hefur tilnefnt tvö verk til Norrænu lýsingarverðlaunanna.

Annað er Vatnasafn í Stykkishólmi sem listamaðurinn Roni Horn vann fyrir Stykkishólsmbæ en arkitektastofan Gláma - Kím vann. Lýsingarhönnuður var Helgi Kr. Eiríksson / Lúmex. Sjá nánar um verkið  hér .
thumb_nl10_is_vatna1

Hitt verkið er starfsmannahúss Gufunesskirkjugarðs. Arkitekt er Arkibúllan en lýsingarhönnuður er Ingi Már Helgason / Lúmex. Sjá nánar um verkið  hér .
thumb_nl10_is_kirkjug

Myndir

bleikt0910-03Í tilefni af árlegu átaki Krabbameinsfélags Íslands gegn brjóstakrabbameini var bleiku ljósi varpað á Radisson Blu 1919 hótelið við Pósthússtræti. Ljósin voru tendruð 1. október og fá að lýsa til 1. nóvember. Þetta er annað árið í röð sem nemendur í lýsingarhönnun við Tækniskólann fá þetta glæsilega. Nemendur sáu um alla lýsingarhönnun, skipulagningu og uppsetningu á verkinu.

Hótelið verður bleikt að utan sem innan allan októbermánuð til styrktar sölu- og árvekniátaki Bleiku slaufunnar.

Ljóstæknifélagið óskar nemum í lýsingarhönnun til hamingju með stórglæsilegt verkefni.

Sjá fleiri myndir í myndaalbúmi.

neydarforsRitið Neyðarlýsing er nú uppselt hjá félaginu. Vinna er í gangi með Brunamálastofnun við endurbætt rit og er sú vinna langt komin. Nýja ritið er væntanlegt í sölu eftir áramót.

Minnt er á að pöntunarform á síðunni liggja niðri eins og er og sama á við um aðildarumsókn í félagið. Vinsamlegast sendið póst í staðinn á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Ljóstæknifélag og Orkuveita Reykjavíkur auglýsa eftir tillögurm í vöruþróunarverkefni.

Skilafrestur: 16. desember 2009 – Þátttaka er öllum heimil.

Verkefnið „Ljóstvistar“ hefur það að markmiði að auka áhuga og styðja hönnuði til að þróa lampa úr ljóstvistum til innlendrar framleiðslu. Þremur tillögum verður veittur styrkur til áframhaldandi
þróunar, auk þess sem veittar verða viðurkenningar fyrir m.a. frumleika, útlit og gæði lýsingar.

Nánar...