led_for_vef
vinnu_for_vef
ljosogrymi_for_vef
gotuogvega_for_vef
neydar_for_vef
skolalysing_for_vef
glh-fors150
ljos0801_for_vef

LED gæðakröfur

Fagsamtök í lýsingargeiranum ss PLDA, IALD og fleiri hafa í samvinnu skilgreint og búið til gæðakröfur fyrir ljóstvista (LED). Formaður Ljóstæknifélagsins Guðjón L. Sigurðsson skrifaði grein um þetta efni í janúar á þessu ári og benti á mikilvægi þess fyrir fagfólk að kynna sér vel hvað liggur á bak við auglýsingar framleiðenda ljóstvista. Ljóstæknifélag Íslands hvetur sína félagsmenn til að kynna sér þetta skjal enda mjög áriðandi fyrir fagfólk í lýsingu.  Skjalið má nálgast á grænum síðum PLDA sjá hér.

Myndir

Fræðslufundur 1. febrúar er að baki.  Mæting var góð og erindin fróðleg.  Kristín Ósk Þórðardóttir frá Verkís benti m.a. á rannsóknir sem sýna að litarhitastig og ljósmagn geta haft jákvæð áhrif á framleiðni manna.  Þórdís Rós Harðardóttir frá Drekaflugu sýndi m.a. fram á að hægt er að nýta dagsljós meira við hönnun bygginga en nú er gert.  Jón Grétar Stefánsson geðlæknir fjallaði m.a. um þekkta innlenda rannsókn sem gerð var á skammdegisþunglyndi meðal Íslendinga. Þessi rannsókn sýndi fram á lægri tíðni þessa sjúkdóms hér en meðal annarra þjóða.   Hinn kunni Danski fyrirlesari Henrik Clausen frá Fagerhult rak lestina og fjallaði um ljós og heilsu á breiðum grundvelli sem var afar áhugavert.  Efni þessa fræðslufundar var tekið upp af tæknifólki O.R.  Slóðin á þetta efni verður birt hér í næstu viku.

Innflutningur kvikasilfurlampa verður bannaður frá 1. apríl 2015 samkvæmt Evrópureglugerð. Þetta er hluti af umhverfisverndarátaki Evrópusambandsins, sem einnig tekur til glóperunnar eins og félagsmenn kannast sjálfsagt við. Í Reykjavík má finna um þriðjung af allri götulýsingu á landinu. Um 46% götulýsingar í Reykjavík kemur frá kvikasilfurlömpum. Því er ljóst að talsverð endurnýjun á lömpum er framundan. Nú eru amk tvö tilraunaverkefni í gangi í borginni með götulampa sem nota ljóstvista. Ljóstvistar eru orkunýtnir og rafmagnsnotkun götulýsingarkerfa minnkar með innleiðingu þeirra. Ljósgæði þeirra í samanburði við hefðbundna götulýsingu eru einnig betri.  Það sem er ekki síður áhugavert í þessu samhengi eru þeir stýringarmöguleikar sem ljóstvistar bjóða uppá. Sveigjanleiki í götulýsingu verður mun meiri en áður hefur þekkst.
Ljós í köldum lit á kvöldin er óæskilegt fyrir mannfólkið. Talið er að það minnki framleiðslu líkamans á melantonini sem m.a. gerir okkur syfjuð.  Ljós tölvuskjáa er oftast í fremur köldum ljóslit.  Því er óæskilegt að vera mikið í tölvunni á kvöldin.  Við viljum benda okkar félögum á ókeypis niðurhlaðanlegt forrit af netinu sem breytir ljóslitarhita tölvuskjáa í samræmi við staðsetningu þína og tíma dags. Forritið er fáanlegt fyrir PC og MAC og fyrir þá sem keyra Linux stýrikerfið.  Þeir sem eyða miklum tíma í tölvunni á kvöldin ættu kynna sé þetta nánar.  Hér má nálgast forritð.  Við hvetjum menn til að kynna sér spurningar og svör hér m.a. hvernig má losna við forritið aftur og svefnrannsóknir hér.